8.10.2008 | 13:05
Fáránlegt!!!
Þetta er eitthver mesta ábyrgðar- og úthaldsleysi Seðlabankans sem landsmenn hafa orðið vitni að og er þá nú mikið sagt. Að gefast upp eftir tvo daga, líklega vegna skorts á gjaldeyri er einhver aumasta ákvörðun þessa banka sem þó stærstu sökina á ríkjandi ástandi. Svo eru menn að prísa Davíð Oddsson eftir þetta fáránlega drottningarviðtal Sigmars við hann í gærkvöldi!
Hvernig hefði nú verið að leita til útréttra handa og nýta sér erlend loforð um lán til að auka gjaldeyrisvarasjóðinn - svo sem frá Svíum og nú frá Norðmennum (svo ekki sé talað um Rússana)?
Nei, það var og er auðvitað ekki gert. Við þurfum ekki á slíku að halda að svo komnu máli!!!
Er ekki kominn tími á nýja ríkisstjórn og nýja yfirstjórn Seðlabankans?
Vegna fastgengisins þá lækkuðu olíufélögin verð á olíu um 10 kr. að jafnaði í gær og heildsalar töluðu um væntanlega lækkun vöruverðs. Nú má búast við hækkun á öllu verðlagi, olíu sem öðru, og óðaverðbólgu í kjölfar þessa fáránlegu viðbragða Seðlabankans. Vita menn ekki hvað þeir gera?
Ekki hægt að halda gengi föstu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Torfi Kristján Stefánsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.4.): 3
- Sl. sólarhring: 10
- Sl. viku: 38
- Frá upphafi: 455388
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það var óraunhæft fyrir seðlabankann að festa gengið með þessum hætti, en það mátti reyna það.
Hinsvegar eru alltaf aðilar sem notfæra svona til að svindla á kerfinu, einsog fréttin sem kom í gær/eða dag benti á að það væri hægt að kaua lágt frá seðlabankanum og selja hátt hjá öðrum aðilum.
Jóhannes H. Laxdal (IP-tala skráð) 8.10.2008 kl. 13:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.