11.11.2008 | 16:28
Fyrrum átrúnaðargoð vinstri manna!
Já, hann er merkilegur ferillinn hans Kristjáns Kristjánssonar. Ég man þá tíð þegar vinstri menn, Samfylkingar sem Vg, mátti ekki vatni halda yfir KK, eða þegar hann var í Kastljósinu að þjarma að kerfisköllunum - og baðaði sig í sviðsljósinu á mannamótum.
Síðan gerðist það sem svo oft hjá þeim sem láta frægðina stíga sér til höfuðs að þeir selja sig hæstbjóðanda. Sem fjölmiðlafulltrúi FL Group tók Kristján þátt í að hilma yfir einhvern mesta skollaleik sem leikinn hefur verið í fjármálageiranum íslenska.
Og nú, til að bíta hausinn af skömminni, ræður hann sig til að hilma yfir úrræðaleysi naktasta forsætisráðherrans í sögu íslensku þjóðarinnar.
Til hamingju með framann Kristján Kristjánsson og verði þér að góðu!
Ráðinn fjölmiðlafulltrúi forsætisráðherra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Torfi Kristján Stefánsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.5.): 2
- Sl. sólarhring: 61
- Sl. viku: 130
- Frá upphafi: 455503
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 117
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.