Hver á að borga?

Bara þetta eina lán er næstum jafnhátt og allar skuldir vegna Icesave, sem samfélagið allt og ekki síst Alþingi fór á annan endann yfir nú fyrir skömmu.

Þessi frétt þýðir væntanlega að Seðlabanki Evrópu muni gera kröfu um að eignast öll sjávarútvegsfyrirtæki í landinu, sem og fjölda annarra íslenskra fyrirtækja.

Þá eru úti um lögin sem kveða á um að útlendingar megi ekki eiga hlut í íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum, megi ekki eiga fiskveiðikvótana.

Þar með er allur árangurinn af fiskveiðistríðum (þorskastríðum) okkar undanfarna áratugi farinn fyrir bí og meira til.

Það getum við þakkað flokkunum sem leiddu einkavæðingu bankanna, Sjálfstæðisflokknum og Framsókn. Í ljósi þessa er skrítið hvernig þessir tveir flokkar létu á þingi þegar verið var að ræða Icesave-málið. Meiri hræsni hefur maður sjaldan orðið vitni að. 

Já mikil er ábyrg þeirra flokka og einstaklinga sem gerðu Ísland gjaldþrota, því það er landið svo sannarlega.

 


mbl.is Skuldar ECB 180 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvað vitleysa er þetta. Ef fyrirtækin borga skuldir sínar geta engir gengið að þeim og ég veit ekki betur en sjávarútvegsfyrirtækin séu að borga sínar skuldir. Svo er alltaf möguleiki á að fá annað lán til að borga hitt lánið ef þú stendur undir vöxtunum.

Dagrún (IP-tala skráð) 10.9.2009 kl. 09:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Torfi Kristján Stefánsson

Höfundur

Torfi Kristján Stefánsson
Torfi Kristján Stefánsson
Höfundur er áhugamaður um hina ólíkustu hluti

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 58
  • Sl. sólarhring: 71
  • Sl. viku: 127
  • Frá upphafi: 455497

Annað

  • Innlit í dag: 57
  • Innlit sl. viku: 116
  • Gestir í dag: 56
  • IP-tölur í dag: 56

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband