Tölvuþrjóti hugnaðist ekki!!!

Já, merkilegar eru þessar fréttir sem starfsmenn mbl.is eru að þýða fyrir okkur úr erlendum miðlum, líklega bandarískum að þessu sinni.

Þrjóturinn er virðingarverður fyrir föðurlandsást sína en maðurinn sem talinn er hafa upplýst alheim um glæp Bandarílkjahers gegn óbreyttum borgurum í Írak (og líklega Afganistan einnig) er fyrirlitlegur svikari enda handtekinn fyrir bragðið.

Já, við erum að tala um helsta lýðræðisríki í heimi þar sem frelsið ríkir í sinni fegurstu mynd! Reyndar minna þessi viðbrögð á annað mikið "lýðræðisríki", það "eina" í sínum heimshluta, þ.e. Ísrael. Það dæmdi mann í lífstíðarfangelsi fyrir það eitt að upplýsa um að Ísrael ætti kjarnorkuvopn og lét hann afplána 16 ár í fangelsi og eftir það farbann og einangrun.

Já, mikil er lýðræðis- og frelsisást þessara landa - og til fyrirmyndar fyrir okkur hin sem erum svo vitlaus að trúa því að opinber umræða og gagnrýni á stjórnvöld séu hluti af lýðræðis- og frelsishefð Vesturlanda.


mbl.is Handtekinn vegna gruns um upplýsingaleka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Torfi Kristján Stefánsson

Höfundur

Torfi Kristján Stefánsson
Torfi Kristján Stefánsson
Höfundur er áhugamaður um hina ólíkustu hluti

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 132
  • Frá upphafi: 455509

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 119
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband