Af hverju ekki ritstjóri Moggans?

Þetta er auðvitað mjög merkilegt frétt og spurning af hverju ritstjórum íslensku blaðanna eru ekki með, Moggans eða Fréttablaðsins.

Annars er fréttin misvísandi, eins og svo margt í íslenskri blaðamennsku. Bréf norrænu ritstjóranna til Cameron er ekki aðeins til komið vegna yfirheyrslunnar á Miranda þessum heldur ekki síður vegna þeirra pressu bresku lögreglunnar á hendur ritstjóra The Guardian.

Góð umfjöllun um málið má lesa hjá aftenposten.no en þar er framferði breska stjórnvalda sagt gera blaðamenn að glæpamönnum og notað til þess hryðjuverkalöggjöfina: http://www.aftenposten.no/kultur/Kraftig-reaksjon-pa-Camerons-kriminalisering-av-journalister-7289895.html#.UhmSAkJoHIU

Þann 20. ágúst sl. þvingaði nefnilega breska öryggislögreglan ritstjóra Guardians til að eyða skjölum sem Snowden hafði komið til blaðsins. Þá beitti einnig hásettur embættismaður í ríkisstjórn Cameronsritstjóranum þrýstingi í þessa áttina og mun hafa sagt honum að hann hafi gert það að skipun forsætisráðherrans.

Þannig er nú komið fyrir frjálsum fjölmiðlum í hinum frjálsasta heimi af öllum heimum...

 

 

 


mbl.is Skrifa opið bréf til David Cameron
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Torfi Kristján Stefánsson

Höfundur

Torfi Kristján Stefánsson
Torfi Kristján Stefánsson
Höfundur er áhugamaður um hina ólíkustu hluti

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 128
  • Frá upphafi: 455532

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 115
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband