19.11.2023 | 19:23
Snillingur þessi Hareide!
Hann setur menn inní byrjunarliðið sem lítil sem ekkert hafa verið að spila með félagsliðum sínum, menn eins og Hjört Hermannsson (en lið hans er í botnbaráttu í ítölsku b-deildinni), Alfreð Finnbogason, sem yfirleitt kemur aðeins inná í blálokin hjá liði sínu Eupen, og Jón Dagur Þorsteinsson sem einnig fær mjög takmarkað að spila með botnliði Leuven í belgísku A-deildinni!
Svo kemur Ísak Bergmann inn í byrjunarliðið sem varla sást í tapleiknum gegn Slóvakíu eftir að hann kom inná í seinni hálfleiknum.
Åge Hareide var ráðinn landsliðsþjálfari af Vöndu Sigurgeirsdóttur þrátt fyrir að hans frægðarferill væri orðinn háaldraður. Reyndar var þessi "frægðar"ferill aldrei neitt merkilegur. Hann þjálfaði Noreg 2003-2008 með slökum árangri. Þá þjálfaði hann Viking í Stavangri á árunum 2010-12 og var svo rekinn.
Árangur hans sem þjálfari er 48%, þar af með íslenska landsliðið 28,6%!
Já, Vanda hafði ekki mikil og merkileg áhrif sem formaður KSÍ meðan var og hét, og frekar neikvæð en hitt. Nú erum við blessunarlega laus við hana þannig að vonandi verður hægt að fá nýjan landsliðsþjáfara fyrir umspilsleikina mikilvægu í mars til að komast bakdyramegin á EM.
![]() |
Sex breytingar á byrjunarliði Íslands |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.11.2023 | 15:06
Að mála skrattann á vegginn
Það er stór spurning hversu hæft þetta fólk er sem stjórnar málunum hvað varðar Grindavíkurbæ - og í raun mikið áhyggjuefni hvernig haldið er þar á málum.
Nú hefur verið spá eldgosi allt síðan jarðskjálftarnir í og við Grindavík hófust en samt hefur aldrei neinn gosórói mælst og engir kvikuskjálftar svo óyggjandi séð. Samt styttist alltaf í eldgosið að mati þessara snillinga.
Þá er sífellt verið að tala um að kvikan sé að nálgast yfirborðið en þó eru engar mælingar til sem staðfesta það. Þetta eru alltsaman ágiskanir sem sýnir hve þessir "vísindamenn", sem sífellt er verið að vitna í, vita í raun lítið um stöðu mála.
Nú bregður hins vegar við að maður eins Þorvaldur Þórðarson, sem hefur verið manna yfirlýsingaglaðastur hingað til, hefur dregið mjög í land og telur að líkur á eldgosi séu í mesta lagi um 30%.
Mér sýnist augljóst að það þurfi að taka þverbeygju í málinu og gera ráð fyrir að ekki gjósi í þessu sigdal (ekkert frekar en í Kelduhverfi um árið).
Einu áhyggjurnar sem stjórnvöld og íbúar þurfa að hafa er vegna jarðskjálftanna, en þó hefur dregið mjög úr þeim undanfarna viku eða í raun alveg síðan stóru skjálftarnir komu í byrjun. Einnig vegna sprungumyndana sem enn virðast vera að gerast.
Því ætti að vera ástæðulaust að forða verðmætum úr bænum úr þessu og jafnvel óhætt að leyfa íbúunum að byrja að koma sér aftur fyrir í þeim húsum og hverfum þar sem engar sprungur eru.
Þetta óþarfa brambolt, sem gengur út á að allur sé varinn góður (rétt eins og skrítlan um nunnuna, kertið og smokkinn) er svo arfavitlaust, að líklega hefur ekkert toppað það hingað til.
Allt þetta lið, sem stjórnar atburðarásinni, virðist hugsa um það eitt að verða ekki gert að sökudólgi, ef eitthvað gerist sem getur kostað líf eða limu fólks, og því þessi harkalegu viðbrögð.
Svo er það auðvitað klíkuskapurinn varðandi hverjir fái að "bjarga" verðmætum, hverjir mega vera inni á hættusvæðinu eins lengi og það vill (svo sem fjömiðlafólk, fólk á vegum fyrirtækjanna í bænum og björgunarsveitafólk), meðan íbúarnir fá í mesta lagi 5-10 mínútur að ná í allra nauðsynlegustu hluti og þurfa að sækja þá í mesta flýti og stressi. Er nema von að íbúarnir eru að verða ansi leiðir og reiðir á þessari "stjórnun" og mismunun.
Já, hér er á ferð enn eitt klúðrið hjá Almannavörnum og öðru ráðafólki, sem virðist aldrei geta lært af sínum fjölmörgu mistökum.
![]() |
Bendir til að kvika sé komin mjög ofarlega |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 15:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.11.2023 | 10:48
Þjóðarmorðið á Gaza
Kannski ekkert skrýtið sbr. eftirfarandi kvæði eftir Jón frá Hvoli, verkamann og prentara í Reykjavík (d. 1949):
![]() |
Segja innrás á sjúkrahús glæp gegn mannkyninu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 10:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.11.2023 | 14:47
Syllu (sillu-) spekin!
Nú eru meira að segja fjölmiðlarnir farnir að gera grín að tilbúna fárviðrinu sem náttúruvársérfræðingarnir, Almannavarnir og aðrir slíkir aðilar eru að þyrla upp til að hræða almenning og stjórnvöld vegna hugsanlegs eða óhugsanlegs eldgoss við Grindavík eða Bláa lónið.
Silluspekin kemur þar t.d. við sögu en einnig Víðir, sem öllu kvíðir o.fl. Hann er nú kominn úr fríi og því skal hefjast handa við að útbreiða fagnaðarerindið enn og aftur, þ.e. hræðsluáróðurinn.
Samt er í raun ekkert að gerast á svæðinu, engir kvikuskjálftar heldur einungis gikkskjálftar sem verða enn "átakanlegri" eftir því sem jarðskjálftamælunum fjölgar og þeir verða nákvæmari - og kvikuinnstreymið, ef eitthvað er, á miklu dýpi og langt frá því að stefna upp á yfirborðið!
En auðvitað verða fjölmiðlarnir að fóðra fólk á einhverri ógn, annars nennir enginn að fylgjast með fréttum og auglýsingatekjurnar snarminnka. Og Veðurstofan og Almannavarnir missa spón úr aski sínum, fá ekki sífellt aukið fjármagn úr sjóðum almennings eins og verið hefur - og fjölmiðlarnir missa áhugann á athyglissjúkum jarðvísindamönnum sem enn og aftur spá eldgosi innan nokkurra daga - því þeir hafa enn og aftur rangt fyrir sér!
https://www.ruv.is/frettir/innlent/2023-11-08-er-silla-synatokupinni-thessara-jardhraeringa-396005
![]() |
Bylgjuvíxlmynd sýnir lóðrétta hreyfingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 14:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.11.2023 | 08:00
"heitt í hamsi"?
Var ráðherranum virkilega heitt í hamsi - og yfir hverju? Kannski vegna yfirstandandi þjóðarmorði á Palestínumönnum á Gaza, þar sem hundruð barna og almennra borgara eru drepnir á hverjum degi? Kannski vegna árásar Ísraelshers í gær á lest sjúkrabíla sem voru að flytja limlesta Palestínumenn, konur og börn á sjúkrahús í borginni?
Það er reyndar fleirum heitt í hamsi vegna þess síðarnefnda. Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, Antonio Guterres, er gjörsamlega miður sín vegna árásarinnar enda liggja limlestir líkamar farþeganna eins og hráviðri á götunni.
En Birgir Þórarinsson furðar sig á því að palestínskur ráðherra sé reiður vegna þessa, enda hefur Birgir þessi réttlætt fjöldamorð Ísraelshers á palestínskum almenningi með þeirri afsökun að Ísrael hafi "rétt á að verja sig"!
Og það gera fleiri Ísraelsvinir eins og flestum er kunnugt.
Eitthvað annað hljóð hefði nú heyrst ef Rússar hefðu gert slíkt hið sama í Úkraínu.
Já, hræsnin mun síst þér sóma, sagði skáldprestur einn eitt sinn, orð sem eiga einkar vel við um alþjóðastjórnmálin þessa dagana.
![]() |
Palestínskum ráðherra heitt í hamsi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 08:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.10.2023 | 20:02
Hræðilegur fyrri hálfleikur en allt í þessu fína!
Statistíkin er 25% með boltann á móti 75% hjá Þjóðverjum - og allt í þessu fína!! Átta hornspyrnur gegn engri!
Það hlýtur að vera komin spurning um þennan landsliðsþjálfara. Liðsvalið nú og á móti Dönum er vægast sagt undarlegt. Einn besti leikmaðir Íslands á móti Wales, Diljá Zomers, fékk svo ekkert að spila á móti Dönum og enn er hún ekki í byrjunarliðinu. Kannski talaði hún of mikið um að eiga eftir að skora mark í landsleik til að kappinn í forsætinu gæti þolað það.
Hann á fleiri bommertur í liðsvalinu. Guðrún Arnardóttir hefur átt afspyrnu slaka leiki með landsliðinu en er samt í byrjunarliðinu. Svo er það þessi Hafrún Halldórsdóttir. Hver er hún, hvaðan er hún að koma og hvert er hún að fara?
Og hvar eru áhorfendurnir? Og af hverju er lúserinn Logi Ólafs fenginn til að lýsa leiknum? Og þessi ruglaði körfuboltakall, Kjartan eitthvað, af hverju er hann að lýsa fótboltaleik?
Svo er auðvitað sama liðið sem byrjar í seinni hálfleiknum!
0-2 og mesta furða að ekki varð meiri munur!
![]() |
Þjóðverjar númeri of stórir fyrir Íslendinga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Pepsi-deildin | Breytt s.d. kl. 20:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.10.2023 | 13:03
Skýrsla vísindanefndarinnar um jákvæð áhrif hlýnunar
Fyrst er það spáin: "Niðurstöður líkanreikninga benda til þess að hlýnun verði meiri norðan við landið en sunnan við það. Í mörgum líkönum gætir tímabundinnar, staðbundinnar kólnunar. Jafnvel þó að hlýni á öldinni í öllum sviðsmyndum og flestum líkönum, gætir tímabundinnar, staðbundinnar kólnunar í mörgum þeirra. Slík kólnun er algengari suður af landinu og gætir skemur í heitari sviðsmyndum. Í 85 til 95% líkana gætir hennar skemur en 20 ár.
Um fornt veðurfar á Íslandi - og núna: "Síðustu ár hefur hægt á þessari hlýnun".
Um Norður-Atlantshaf: "Markverð kólnun [...] varð á hafsvæði suðvestur af landinu á öðrum áratug þessarar aldar".
Það sést einnig í smá ljós í lýsingunni á hlýnun hafsins: Frá 1995 til 2020 hefur hlýr og selturíkur Atlantssjór verið ráðandi fyrir norðan land. [ ] Aukning hefur orðið á magni svifþörunga, bæði á Íslandsmiðum og á stóru svæði suður af Íslandi. [ ] Fyrir norðan land hafa orðið breytingar á magni og útbreiðslu mikilvægra dýrasvifstegunda með hækkandi hitastigi sjávar. Þar hefur hlutur rauðátu aukist. Tekið skal fram hér að þessi gróður og smádýr eru nauðsynleg fyrir fiskveiðar landsmanna.
Og afleiðingarnar: Hækkandi hitastig á íslenska landgrunninu hefur leitt til breytinga á útbreiðslu margra fisktegunda. Tegundir, til dæmis ýsa, sem hafa verið við nyrðri mörk útbreiðslu sinnar á Íslandsmiðum og fundist að mestu í hlýja sjónum sunnan og vestan við landið, hafa stækkað útbreiðslusvæði sitt til norðausturs. Þetta á almennt við um botnfisktegundir (svo sem þorsk) sem og um uppsjávartegundir eins og síld og makríl.
Hins vegar hefur kólnun sjávar suðvestan við landið haft neikvæð áhrif: Nýliðun margra hlýsjávartegunda, svo sem humars, blálöngu og skötusels, hefur minnkað mikið á undanförnum árum. Þessa neikvæðu þróun má meðal annars rekja til breyttra umhverfisskilyrða í hafinu síðastliðin 20 ár. Um er að ræða tegundir sem halda sig aðallega í hlýjum sjó við suður- og vesturströndina.
Einnig þetta: Hlýnun getur dregið úr eftirspurn eftir orku til húshitunar.
Sömuleiðis þetta: Loftslagsbreytingar hafa áhrif á vegasamgöngur [ ] Þær geta [ ] dregið úr þörf á snjómokstri.
![]() |
Farin að hríslast um allt þjóðfélagið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 13:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.10.2023 | 08:56
Aðeins neikvæð áhrif?
Ef lesinn er þessi útdráttur Moggans á samantektarskýrslu vísindanefndar um loftlagsbreytingar gæti maður haldið að áhrif breytinganna séu einungis neikvæð hér á landi og við landið. En er það svo?
Með hlýnandi veðurfari eykst hagsæld bæði til sjós og lands. Aukin fiskgengd verðmætra tegunda eins og makríls við hlýnun sjávar er til marks um það auk þess sem hafísinn, landsins forni fjandi, hefur ekki gert sig heimankominn mörg undanfarin ár.
Á landi hefur hlýnunin m.a. haft þau áhrif að kornrækt hefur aftur hafist eftir margra alda hlé. Vor og haust hafa og lengst til muna þannig að vaxtartími gróðurs hefur aukist mikið og landið gróið upp mjög víða. Þá hefur skógrækt eflst mjög sem á kuldatímabilum var óhugsandi. Hlýnandi veðurfar hefur og gert það að verkum að útivist landmanna hefur aukist til muna, fjallgöngur og fleira, auk þess sem ferðamenn njóta góðs af bættu loftslagi, sérstaklega yfir vetrartímann.
Þá lýsti Landsvirkjun því yfir nýlega að bráðnun jöklanna hafi aukið rennsli vatnsfalla og þar með rafmagnframleiðsluna það mikið að sem samsvari heilli stórri virkjun.
Ekkert af þessu er nefnt í úttektinni heldur einungis það hugsanlega neikvæða einhvern tímann í framtíðinni.
Svo er það ábyrgð okkar gagnvart öðrum þjóðum. Nýleg skýrsla Alþjóðabankans sýnir að mjög hefur dregið út fátækt í heiminum á síðustu 20 árum, og þá væntanlega m.a. vegna bættra ræktunarskilyrða matvæla.
Svo hver er þá váin hræðilega sem er verið að innprenta hjá almenningi?
![]() |
Breyta náttúrufari og lífsskilyrðum á Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 08:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.10.2023 | 11:08
Landsliðsþjálfarinn og oflofið!
Íþróttafréttamenn, þar á meðal Moggans, hamast við að lofa landsliðsþjálfarann - og allt karlalandsliðið í fótbolta - þrátt fyrir að liðinu hafi gengið illa undir hans stjórn, fyrsti sigurinn kom í gær gegn arfaslöku Liechtensteinliði.
Tekið skal fram í þessu sambandi að leikurinn úti gegn smáríkinu vannst 7-0 og var þó þjálfarinn, Arnar Þór Viðarsson, rekinn eftir þau úrslit (þremur mörkum betri úrslit en hjá Åge!!).
Norsarinn lét hafa eftir sér fyrir skömmu að hann ætlaði að yngja liðið upp en svo kallar hann á gömlu jálkanna, Gylfa Sig og Aron Einar!
Fleira orkar tvímælis í vali Haraide á liðinu, svo sem að nota Rúnar sem markmann í leiknum gegn Luxemburg. Þar sýndi Rúnar vítavert kæruleysi í blálokin (eftir gönuhlaupið sem hafði næstum kostað mark) þegar hann reyndi að sóla andstæðinginn og rétt slapp með það. Það er löngu kominn tími til að hvíla þennan markmann enda eigum við margar góða sem leika reglulega með liðum sínum en Rúnar gerir það ekki.
Já, einhver sagði að fótboltinn sé ekkert betri en íþróttafréttamennirnir sem fjalla um hann - og er það orð að sönnu. Miðlungs eða lélegar umfjallanir haldast í hendur við miðlungs eða lélegan árangur.
Svo er auðvitað oflof sama og háð - þó það sé ekki meint þannig!
![]() |
Engin ástæða til að hleypa honum aftur út |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Pepsi-deildin | Breytt s.d. kl. 11:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.10.2023 | 17:11
Dabbi Grensás!
Eitthvað er nú verið að hlífa þessum þjálfara Vestra sem kom liðinu upp í efstu deild.
Það er greinilega verið að fela það, að þessi maður, Davíð Smári Lamude, er sami gaurinn og var þekktur hér áður fyrr undir nafninu Dabbi Grensás.
Ofbeldisferill þessa manns er langur og virðist hann hafi lagt sig fram við að lemja landsliðsmenn í fótbolta! Fengu menn eins og Eiður Smári og Hannes Sigurðsson að kenna á hnefa hans. Einnig fékk litli sæti gullmolinn hann Sveppi einn á lúðurinn frá Dabba og svo einn fótboltadómari sem Dabbi rifbeinsbraut.
Hér er frægðarsaga Dabba stuttlega rakin: https://www.visir.is/g/2008513344d/hver-er-thessi-dabbi-grensas-
Þetta var fyrir slatta af árum eða fyrir 2010. En síðan gerðist það árið 2015 að hann lamdi mann með hækju en ekki kemur fram í fréttum hvað pirraði hetjuna:
https://www.dv.is/frettir/2017/11/27/dabbi-grensas-akaerdur-fyrir-ad-berja-mann-med-haekju-vid-kjarvalsstadi/
En nú er hann nýr og betri maður segir pressan - og hann sjálfur. En er það svo? Fyrir tveimur árum var hann dæmdur í fimm leikja bann frá fótbolta fyrir að ráðast á dómarann, en þá var hann þjálfari Kórdrengja.
Það má því búast við ýmsar uppákomur í efstu deild karlaboltans á næsta ári og auðvitað spurning hvort svona maður eigi eitthvað erindi sem þjálfari yfirhöfuð.
En það er allt á sömu bókina lært hjá KSÍ. Ef kona kærir karl, landsliðsmann í fótbolta, fyrir meint kynferðisbrot þá er honum umsvifalaust vikið úr landsliðinu án þess að sekt hans sé sönnuð, hvað þá að málið hafi verið tekið fyrir. En alræmdur ofbeldismaður fær að þjálfa fótboltalið á efsta stigi!
Hvers vegna? Jú, hann lamdi bara karlmenn, reyndar helst þá sem voru frægir fótboltamenn eða dómarar. Það skiptir þó greinilega auðvitað engu máli fyrir kvenfólkið sem nú stjórnar knattspyrnusambandinu!
![]() |
Davíð Smári um fortíðina: Var ungur og vitlaus |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Pepsi-deildin | Breytt s.d. kl. 17:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Torfi Kristján Stefánsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.4.): 5
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 89
- Frá upphafi: 462891
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 83
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar