Færsluflokkur: Dægurmál

Morðið á Kamban

Ef nafnið Egon Al­fred Høj­land er gúgglað kemur aðeins upp ein persóna, sem var þingmaður Miðdemókrata á áttunda áratugnum. Hann var fæddur 1916 þannig að þetta passar alveg. 

Þessi flokkur var borgaralegur miðjuflokkur eins og nafnið gefur til kynna, svo það er óhætt að efast um að þessi maður hafi verið mjög róttækur anti-nasisti, og sem einnig má spyrja sig um dönsku andspyrnuhreyfinguna sem slíka. 

https://da.wikipedia.org/wiki/Egon_H%C3%B8jland

Sama má segja um Danina sjálfa á árunum fyrir stríð og fyrstu ár stríðsins. Fyrir stríðið þóttust þeir óhultir fyrir Þjóðverjum (þeir væru vinir þeirra þó svo að nasistarnir væru við völd) og létu herinn drabbast niður. Þeir voru og samvinnuþýðir til að byrja með í stríðinu meðan stríðsgæfan var með Þjóðverjum, sendu m.a. 60.000 manns til að berjast með þeim á austurvígstöðvunm (þá var það gegn helv. kommunum), en voru fljótir að snúa við blaðinu þegar stríðsgæfan brást nasistunum.

Við sjáum svipað rússahatur Dana nú (óvinurinn heitir Putin nú, ekki komminn) en þeir eru einna þjóða duglegastar að styrkja Úkraínu gegn Rússum. Þá skiptir engu máli hversu spillt úkraínsk stjórnvöld eru eða hvernig er farið með þjóðernisminnihlutana í landinu.

Annars má benda á mjög góða ævisögu Kambans eftir Svein Einarsson fyrrum Þjóðleikhússtjóra, þar sem stórlega er efast um að Kamban hafi verið hliðhollur nasistum.


mbl.is Banamaður Kambans nafngreindur í fyrsta sinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver borgar fyrir þetta?

Eitthvað hljóta nú þessir norsku kafarar að kosta. Þar sem þeir eru jú á vegum Hafrannsóknarstofnunar (eða hvað?) er spurning hvort hún þurfi sjálf að kosta þessar aðgerðir - og þar með íslenskir skattgreiðendur - eða hvort að sökudólgurinn, Arctic Fish, beri kostnaðinn? 

Nú er það fullsannað að mikill fjöldi eldislaxa hefur sloppið úr kvíum þessa fyrirtækis í Patreksfirði og fundist ótrúlega víða í vestfirskum og norðlenskum laxveiðiám.
Ekkert heyrist þó frá stjórnvöldum hvort og þá hvaða refsiaðgerðum þetta norska fyrirtæki verði beitt og er allt eins líklegt að eftirmálarnir verði engir. Það má jú ekki flæma erlenda fjárfesta frá landinu (og helst þurfa þeir ekki að borga neitt til samfélagsins)!
Ekkert hefur heldur komið fram hvort eigendur laxveiðiréttinda, þar sem þessir eldislaxar hafa fundist, eigi rétt á einhverjum skaðabótum, hvað þá hve miklum.

Já, undarlegur er þessi heimur okkar orðinn og tjónkunin við peningaöflin, öðru nafni athafnaskáldin, ekki síst ef það eru útlendingar sem eiga í hlut.


mbl.is Norsku froskmennirnir skutluðu tólf laxa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"óvinaríkið"?

Það er auðvitað alltaf athyglisvert að heyra í ráðamönnum í Washington hverjir séu óvinir Kanans þó svo að það fylgi sjaldan hvers vegna. Í fréttinni er talað um "ögrandi aðgerðir" en ekki nánar tiltekið í hverjum þær séu fólgar.

Kannski að írönsk stjórnvöld hafa gerst svo djörf að standa uppi gegn hagsmunapólitík Kanans þarna eystra. Allir sem gera slíkt eru jú óvinir þessa illa heimsveldis og sýna með því ögrandi aðgerðir. 

Hér er ein gömul, góð vísa um blessaðan Kanann og gæði hans hér á landi sem annars staðar í heiminum: "Hinn amríski stríðsguð sem stendur á verði / hann stuggar burt föntum með logandi sverði" osfrv.

https://glatkistan.com/2021/11/03/lofsongur-2/

 


mbl.is Fangaskiptum fagnað en varnaglar slegnir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kaninn og rýra úranið

Bandaríkjamenn hafa notað þetta úran í amk tveimur árásarstríðum þeirra sjálfra, í Bosníu árið 1995 og Kosvó 1999. Á Wikipedia kemur fram að að minnsta kosti 40 ítalskir hermenn létust og milli 500-600 veiktust eftir að komast í snertingu við geislavirkt efni úr úransprengjum Kanans á Bosníu og Kosovo. Ítölsku hermennirnir unnu við að hreinsa upp eftir þessar sprengjur.

https://is.wikipedia.org/wiki/R%C3%BDrt_%C3%BAran

Ekki þarf að taka það fram að þessar árásir voru gegn alþjóðalögum, rétt eins og sífellt er hamrað á um "innrás" Rússa í Úkraínu sem er þó til að vernda rússneska minnihlutann í Austur-Úkraínu, rétt eins og Nató notaði sem yfirskin í stríði þeirra gegn fyrrum Júgóslafíu og núverandi Serbíu.
Í Kósóvustríðinu voru eyðilagðar eða stórskemmdar opinber mannvirki og byggingar eins og brýr, sjúkrahús, skólar, minnismerki og byggingar í einkarekstri. Engar bætur hafa komið fyrir þetta tjón, ekki frekar en í árásarstríði Bandaríkjamanna í Afganistan og víðar.

https://en.wikipedia.org/wiki/NATO_bombing_of_Yugoslavia

Þó hneykslast hin vestræna pressa og pólitíkusarnir yfir framferði Rússa í stríðinu í austurhluta Úkraínu þó þrátt fyrir að það stríð takmarkist að mestu við skotgrafahernað og að Rússar forðist eftir megni að hæfa innviði í Úkraínu og íbúðahverfi.

Ef einhverjir sýna miskunarleysi í þessum átökum, sem og öðrum slíkum sem Vesturlönd hafa verið viðriðin, eru það einmitt þau með morðóðan Kanann í broddi fylkingar.

 

 

 


mbl.is Umdeild skotfæri skýrt dæmi um „miskunnarleysi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Siðleysi Kviku banka

Það er greinilegt að stjórnendur íslensku bankanna eru búnir að gleyma Hruninu. Einn aðalleikarinn í hinu "svokallaða" Hruni er t.d. aftur orðinn bankastjóri Kviku banka.

Ferill hans innan fjármálakerfisins er ansi skrautlegur. Félag hans, Ármann Þorvaldsson ehf, var úrskurðað gjaldþrota árið 2011 en gjaldþrotaskiptum lauk ekki fyrr en 2018. Af 5,7 milljarða gjaldþroti fékkst ekki nema 152 milljónir uppí skuldirnar!
Þetta þrot var fyrst og fremst tilkomið vegna lána sem félag Ármanns fékk til að braska með hlutabréf. Hann var þá forstjóri Kaupþings í London og veitti þannig sjálfum sér lánin, amk að hluta. Ætli hann feti ekki aftur í eigin fótspor?

https://www.visir.is/g/20181027647d/5-7-milljarda-gjaldthrot-armanns-thorvaldssonar-ehf

Fyrir þessa viðskiptasnilld og fleiri slíkar er hann nú verðlaunaður í annað sinn með forstjórastöðu í Kviku banka eða eins og stjórnarformaðurinn (og biskupssonurinn) segir réttilega um Ármann: "Reynsla og þekk­ing Ármanns á fjár­mála­markaði ger­ir það að verk­um að hann verður öfl­ug­ur leiðtogi bank­ans sem get­ur unnið af krafti úr þeim fjöl­mörgu tæki­fær­um sem blasa við Kviku".

Hætt er þó við að viðskiptavinum Kviku banka - og þar með Auðar banka, sem kynnir sig sem dóttur Kviku - sé ekki alveg sama um þessa vendingu og íhugi nú að beina viðskiptum sínum annað.
Það myndi þá minna talsvert á stemmninguna í kringum Íslandsbanka og spillinguna þar en þrír stórir viðskiptavinir þess banka hafa ákveðið að færa viðskipti sín annað.
Eins og kunnugt er hafa lengi staðið yfir þreifingar milli Kviku banka og Íslandsbanka um að sameinast. Þar hittir þá líklega skrattinn ömmu sína fyrir ef af verður.


mbl.is Marinó hættir í Kviku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kalt eða hlýtt?

Hlýtt á suðvestur- og Suðurlandi en kalt annars staðar á landinu.
Sumir kvarta sem sé yfir kulda meðan aðrir gleðjast yfir hlýindinum.

Í Danmörku hafa fokið fjaðrir vegna ummæla eins pólitíkusins þar í landi sem varð það að orði að allt sé öfugsnúið í pólitíkinni þessi misserin. Meðan almenningur kvartar yfir kuldanum í sumar og vilji eiga meira fé milli handanna, vilja stjórnvöld kaldari sumur og hærri skatta: 
"De fleste af os vil gerne have bedre sommervejr. Mange vil gerne have bedre luft i økonomien. Alligevel fastholder et flertal, at temperaturen skal ned og skatten skal op. Mærkelig tid vi lever i".
Já það er víðar en hér sem er ys og þys útaf engu!

https://www.dr.dk/nyheder/politik/pernille-vermund-forsvarer-oenske-om-hoejere-sommertemperaturer


mbl.is Hitinn í sjötta „hlýjasta sæti aldarinnar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kjarnorkusprengjur á Keflavíkurflugvelli?

Þessar sprengjuflugvélar bera iðulega kjarnorkusprengjur og því þurfa íslensk stjórnvöld auðvitað að spyrjast fyrir um hvort þessar þrjár vélar, sem eru væntanlegar í "æfingar" hér við land, séu með slíkar sprengur innanborðs. Ísland er jú yfirlýst kjarnorkulaust land og á að vera það til framtíðar, rétt eins og hin Norðurlöndin eða hvað?
Þessar vélar eru annars einhver dýrustu morðtól sögunnar, er þá mikið sagt, og kosta skildinginn: https://en.wikipedia.org/wiki/Northrop_Grumman_B-2_Spirit

Undirlægjuháttur íslensku ríkisstjórnarinnar gagnvart Kananum hefur sjaldan eða aldrei verið eins mikill og nú, ekki einu sinni í kalda stríðinu var lagst svo lágt.
Eru ekki kominn tími fyrir VG að taka pokann sinn í þessu stjórnarsamstarfi?. VG hefur jú ítrekað lagt fram þingsályktunartillögur um að landið skuli ávallt vera kjarnorkulaust.
Íhaldið er hvort sem er að hóta stjórnarslitum ef hvalveiðar verða ekki leyfðar að nýju, svo af hverju ekki að taka það á orðinu þegar það gefur þennan höggstað á sér?

 


mbl.is Bandaríski flugherinn til landsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"kristaltært" hatur á biskupi?

Steindór Haraldsson þessi er einkennilegur náungi ef eitthvað er að marka framkomu hans gagnvart Agnesi biskupi alla tíð frá því hún tók við embætti.

Hann var stuðningsmaður sr. Sigurðar Árna á sínum tíma - í biskupskosningunum sem Agnes vann - og segist hafa þekkt hann frá ungum aldri (frá því í KFUM?).

Steindór virðist hafa þolað tapið illa því hann hefur síðan gert í því að draga úr völdum biskups svo sem að bola Agnes frá sem forseta Kirkjuráðs (ekkert með Agnesi að gera, að hans sögn!) og svo nú þetta með að véfengja lögmæti ráðningarsamning hennar (engir vottar á honum!).

Ekki veit ég af hverju Kristrún Heimisdóttir er í þessum félagsskap nema auðvitað það að hún elskar að vera með leiðindi.


mbl.is „Það er kristaltært“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er eiginlega að þessari manneskju?

Merkileg þessi endemis uppákoma hjá forseta Kirkjuþings í ljósi þess sem undan hefur gengið. Hún stígur greinilega ekki í vitið blessunin og virðist vera illviljug að auki.

Biskupskosning á hvort sem er að fara fram næsta vor eða sumar, enda ætlar biskup að sitja þangað til hún verður 70 ára, þ.e. í október að ári, svo þetta útspil kirkjuþingsforsetans er einstaklega heimskulegt.

Þessi uppákoma Drífu, fyrrum þingmanns íhaldsins, sýnir vel hversu óheppileg tvískipting kirkjuvaldsins er og hversu mikil áhrif pólitískt valdir fulltrúar Kirkjuþings eru farnir að hafa á innri mál þessarar stofnunar. Yfirmaður hennar, biskupinn, er orðinn gísl leikmannanna í stað þess að vera leiðtogi allrar kirkjunnar eins og verið hefur lengstum.
Klofningurinn milli lærðra og leikra er augljósi ekki síst í ljósi þess að prestar almennt styðja það að Agnes fái að sitja til sjötugs án nokkurra afskipta kirkjuþingsins.

Svo er hin lagalega hlið í raun biskupi í vil, svo ólíklegt er að kjörstjórnin muni breyta upphaflegri áætlun sinni, sem er að kosið verði næsta sumar.
Biskup Íslands er nefnilega æviráðinn samkvæmt þeim lögum sem giltu þegar Agnes var kosin (2012) og nýrri lög breyta engum um það. Það eina sem biskup þarf að gera samkvæmt gömlu lögunum er að biðjast lausnar þegar hún verður sjötug. Það hefur hún jú gert eins og kemur fram í samningi hennar við biskupsstofu.

Það að forseti Kirkjuþings hafi aðeins viljað gera framhaldssamning uppá eitt ár við Agnesi er í raun klár aðför að hennar rétti - og ekki nema von að hún hafi nýtt sér rétt sinn með samningum við Biskupsstofu (sem nú er reynt að gera tortryggilegan).

 


mbl.is Kjörstjórn hefji undirbúning að kjöri biskups
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað með spádómana um Suðurstrandarveg?

Þeir yfirlýsingaglöðu og athyglissjúku, nefni engin nöfn, spáðu því strax þegar gosið byrjaði - og sást hvert hraunið stefndi - að það næði að Suðurstrandarvegi á 4-6 dögum - og héldu því svo áfram næstu vikuna! Hraunið myndi fljótt fylla Meradali og þá væri stutt niður á veg.
Aðrir töluðu um nokkrar vikur eða uppúr miðjum ágúst.
Síðan gerist það ófyrirséða að hraunið finnur sér nýjan farveg og fer að renna í vestur en ekki í suður eins og áður.
Hvernig ætli spámennirnir góðglöðu bregðist við þessum tíðindum? Verður næsta upphrópun þeirra - og fjölmiðlanna - að hraunið nái Reykjanesbrautinni eftir viku eða svo?

 


mbl.is Útsýni skert eftir að gígbarmur brast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Torfi Kristján Stefánsson

Höfundur

Torfi Kristján Stefánsson
Torfi Kristján Stefánsson
Höfundur er áhugamaður um hina ólíkustu hluti

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband