Færsluflokkur: Dægurmál
17.7.2023 | 07:31
Baronsstígs?
Ekki vissi ég að það væri bílastæðahús á horni Baronsstígs og Bergstaðastrætis! Nær miðbænum er hins vegar bílastæðahús eða nálægt horni Bergstaðastrætis og Skólavörustígs og er líklega átt við það. Þekking fjölmiðlafólks á borginni er ekki uppá marga fiska!
![]() |
Ekki einungis bílar sem valda vandræðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.7.2023 | 20:56
Hvað með álverin?
Í sömu frétt á RÚV kemur aðeins meira fram - og úr óvæntri átt. Þar kemur nefnilega fram að skemmtiferðaskipin menga á heilu ári álíka mikið og álverið í Straumsvík losar af SO2 á einum og hálfum mánuði!
Þetta er þannig aðeins 13% af árslosun álversins í Straumsvík. Hvað ætli álverin öll saman mengi mikið - og af hverju er aldrei talað um það?
Samt hrósa pólitíkusarnir, fjölmiðlarnir og allur almenningur sér af því hvað hann er "grænn"!
![]() |
Mengun vegna skemmtiferðaskipa níunda mest á Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 20:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.7.2023 | 15:57
Alltaf sami hræðsluáróðurinn
Þessi Þorvaldur Þórðarson er illa haldinn af athyglissýki og þess vegna fullyrðingaglaður með afbrigðum. Því sama var spá í gosinu 2021 (fyrsta gosinu). Þá var í byrjun goss spáð að hraunið myndi streyma inn í Meradali - og síðan niður í Nátthaga sem er ekki langt frá Grindavík. Það stóðst auðvitað ekki, ekki frekar en annað sem þá var sagt til að hræða fólk (og búa til fyrirsagnir). Það gos stóð í um sjö mánuði en aldrei fylltust Meradalir!!
Feiti dvergur lærir greinilega ekkert af reynslunni, hvað þá fjölmiðlar.
![]() |
Gæti flætt út úr Meradölum á 4 til 6 dögum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 16:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.7.2023 | 18:08
Hræsnin mun síst þér sóma
Það hlýtur að hafa vakið furðu margra að Reykjavíkursborg hafi nýlega gerst "systra"borg Lvív en þar hafa nýnasistar töglin og hagldirnar, en sýnir auðvitað hvað kratarnir eru orðnir hægri- og hernaðarsinnaðir.
Samúðarkveðjurnar eru kannski skiljanlegar þess vegna en hvað með árás Ísraels á flóttamannabúðir Palestínumanna á Vesturbakkanum þar sem mun fleiri voru drepnir eða amk 10 manns? Af hverju ekki að senda frekar samúðarkveðjur til Palestínustjórnarinnar þar?
Þeir eiga ekki einu sinni í stríði við Ísrael heldur er hernumið land, sem Lviv og stór hluti Úkraínu er ekki.
Já, hræsni Vesturlanda og meðvirkni með Úkraínu verður sífellt átakanlegri. Þar fara pólitíkusar og fjölmiðlar í broddi fylkingar.
![]() |
Dagur sendir samúðarkveðjur til Lvív |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.6.2023 | 10:57
Nýnasistar að verki
Hér segir að úkraínskar hersveitir hafi gert árás á rússnesk héruð sem er auðvitað rétt en málið mun þó vera það að rússneskir nýnasistar, sem eru hluti af úkraínska hernum, standa fyrir þessum árásum.
Þeir nota bandarísk vopn til þess, þrátt fyrir að Bandaríkjamenn neiti því að hafa leyft notkun þeirra til að gera árásir á Rússland. Einnig hafa úkraínsk stjórnvöld reynt að breiða yfir það að þessar árásir sé á þeirra vegum en því trúa fáir, ekki einu sinni áköfustu stuðningsmenn Úkraínumanna.
Þetta rennir stoðum undir það, að það sem eru kallaðar falsfréttir Rússa, þ.e. að nýnasistar eru stór hluti af herafla Úkraínu.
Mætti maður biðja um hlutlausari fréttaflutning af þessu ógeðslega stríði sem er fyrst og fremst Vesturveldunum að kenna, og þar með stuðningi íslensku ríkisstjórnarinnar við hálfnasísk stjórnvöld í Úkraínu?:
https://www.nrk.no/urix/tror-ikke-russere-angriper-russere-1.16447589
![]() |
Árásir gerðar á rússnesk héruð við landamærin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 10:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.6.2023 | 09:10
Sveitarstjórinn tvísaga - eða margsaga
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps hefur allavega verið tvísaga varðandi Hvammsvirkjunina, ef ekki margsaga.
Í grein á visir.is kemur fram að 15. febrúar sl. lýsti sveitarstjórinn því fjálglega yfir að ekki kæmi til greina að veita virkjuninni framkvæmdaleyfi. Sveitarfélagið hefði engan fjárhagslegan ávinning af henni og muni jafnvel verða fyrir fjárhagslegu tjóni ef af henni verður.
https://www.visir.is/g/20232427780d/sveitar-stjorn-stattu-med-sjalfri-ther-i-dag-og-segdu-nei-
Nú er skyndilega komið annað hljóð í strokkinn og er vandséð hvað veldur þessari stefnubreytingu. Einhver fjárhagsleg fyrirgreiðsla bak við tjöldin - eins konar mútur?
Svo var athyglisvert að heyra í forstjóra Landsvirkjunnar vegna þessa máls þar sem hann virðurkennir að það sé í raun engin þörf á þessari virkjun, það sé til næg umframorka til að fullnægja markaðinum!
![]() |
Samþykktu framkvæmdaleyfi vegna Hvammsvirkjunar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 09:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.6.2023 | 16:47
Reykurinn þegar kominn hingað!
Reykur frá skógareldunum í Kanada náði hingað til lands þegar 1. júní samkvæmt frétt í norska ríkissjónvarpinu (norsk kringkasting): "Ifølge klima- og miljøinstituttet NILU har røyken fra skogbranner i Canada beveget seg over Grønland og Island siden 1. juni, før den nå har nådd Norge."
https://www.nrk.no/sorlandet/vg_-roykpartikler-fra-canada-har-nadd-norge-1.16438081
![]() |
Mengunarinnar gæti orðið vart á Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.5.2023 | 09:32
Úrkomusumar á suðvesturhorninu!
Það er engu logið upp á veðurspámennina okkar, sérstaklega ekki ef þeir eru framsóknarmenn! Þar er ávallt verið að þóknast fólki, já, já og nei nei stefnan.
Einar Sveinbjörnsson spáði því nefnilega ekki alls fyrir löngu að ríkjandi hæðarsvæði verði við landið í sumar. Það taki að hlýna í veðri um mánaðamótin og fátt bendir "til annars en að sumarið hér á landi verði nokkuð gott - jafnvel með hita yfir meðallagi. Hann bætir svo við: allavega fyrri hluti sumarsins gæti orðið hagfelldur með þessum háa þrýstingi og almennt hita yfir meðallagi, svona heilt yfir.
Íbúar á suðvesturhorninu hafa nú ekki tekið eftir þessum háþrýstingi enda sífelldur lægðagangur yfir landið með tilheyrandi úrkomu á Suður- og Vesturlandi.
Í þessari frétt er talað um að það stefni í úrkomumet en fyrra metið var í maí 2018.
Það sumar gerði það ekki endasleppt. Ekki nóg með úrkomumetið í maí heldur var júní ekkert skárri. Þá rigndi í 25 daga. Úrkomudagafjöldi í mánuðunum tveimur var mun fleiri heldur en áður er vitað um. Enn rigndi talsvert í júlí 2018 en ágúst var þokkalegur.
Ef eitthvað er að marka þessi líkindi milli maí 2018 og maí 2023 má búast við öðru eins rigningarsumri í ár og var 2018. Eitthvað annað en spá Einars sem reyndar byggir á alþjóðlegum spám.
![]() |
Sólarleysismetið gæti fallið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 09:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.5.2023 | 13:43
Að kenna öðrum um
Enn eitt gagnrýnislausa drottingarviðtalið í fjölmiðlunum "okkar"! Það hefði vel mátt geta þess í þessari frétt að Þorvaldur þessi er með röð grunsamlegra viðskipta á bakinu (og auðvitað alltaf sárasaklaus). Hann var lengi með réttarstöðu grunaðs manns hjá sérstökum saksóknara og er það eflaust ennþá, miðað við seinaganginn á þeim bænum.
Stærsti skandallinn er líklega salan á einskisverðum hlutabréfum í Stím, sem Saga fjárfestingarbanki Þorvaldar fékk 1200 milljónir fyrir, þ.e. 1,2 milljarð króna! Vinur hans í Glitni var svona rausnarlegur.
http://www.dv.is/frettir/2010/11/17/thorvaldur-ludvik-bad-johannes-ad-selja-skuldabrefid/
Þorvaldur mun á sínum tíma, rétt eins og nú, hafa leitað logandi ljósi að fjárfestum til að bjarga bankanum sínum og fékk t.d. mjög hagstæð lán hjá vinum sínum í Hrunstjórninni í því skyni.
Með þessa sögu á bakinu fékk hann svo bitling hjá Akureyringum, var ráðinn framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar af enn einum vini sínum. Það bar þennan ávöxt, enn eitt fiffið án þess að skaðast á nokkurn hátt á því sjálfur að því er virðist, heldur einungis valdið öðrum skaða.
Þetta mál minnir mjög á Wow-málið og Skúla Mogensen, sem átti einnig margar andvökunætur og lagði út mikið fé sjálfur til að bjarga flugfélaginu "sínu" - en var svo kominn á fulla ferð aftur í bisness stuttu seinna.
Já, enn einn hrunverjinn sem leikur lausum hala í viðskiptalífi landsmanna - og það án nokkurra eftirmála?
https://is.wikipedia.org/wiki/%C3%9Eorvaldur_L%C3%BA%C3%B0v%C3%ADk_Sigurj%C3%B3nsson
![]() |
Draumurinn úti að sinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 13:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.5.2023 | 18:20
Boðnarmjöður
Hér er ein góð vísa um þessa uppákomu:
![]() |
Telur engar líkur á að tillagan verði samþykkt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Torfi Kristján Stefánsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 49
- Frá upphafi: 463759
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 46
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar