Færsluflokkur: Dægurmál
15.5.2023 | 09:26
Enn eitt rigningarsumarið sunnan og vestan til?
Einar Sveinbjörnsson er ávallt vígreifur þegar kemur að langtímaspám og reiðir sig þar á einhverjar óljósar spár útlenskra veðurspástöðva - enda standast spárnar hjá honum yfirleitt ekki!
En ef rýnt er nánar í þessa spá má t.d. lesa þetta um júlímánuð: "Í júlí gerir spá ECMWF síðan ráð fyrir áberandi háþrýstingi yfir Bretlandseyjum, Þá [er] meira um hreinar sunnanáttir og líklega þá rigningarsamt sunnantil en hlýtt norðan og austantil."
Þá vitum við það - tásuskoðun á Kanarí í júlí fyrir sunn- og vestlendinga!
Reyndar virðist enn eitt rigningarsumarið hér á landi þegar hafið því spáð er rigningartíð alla þessa viku og eins langt og spár ná, allavega hér sunnan heiða.
![]() |
Spáin gerir ráð fyrir hlýju sumri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.5.2023 | 13:05
Alveg sannleikanum samkvæmt?
Kíkti t.d. á Vopnafjörð á map.is en sá þar ekkert bæjarnafn t.d.
https://map.is/base/@701536,598496,z4,0
Það geta varla talist nægileg gæði en kannski auðvelt að laga það (merkja bæjarnöfnin inn, þ.e. jarðirnar).
![]() |
Kæra útboð á öflun loftmynda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.5.2023 | 19:52
"málið í ferli"!
MAST virðist vera í einhverju mjög ljótu ástarsambandi við hrossabændur sem gerir það að verkum að þeir komast upp með mjög illa meðferð á hestum sínum.
Stofnunin gerði engar athugasemdir við blóðtöku úr fylfullum merum, þrátt fyrir greinilegt ofbeldi og illa meðferð á skepnunum við blóðtökuna.
Nú hefur hún enn einu sinni verið uppvís af því að líta framhjá illri meðferð á hrossum, hvað fóðrun varðar, Borgarnesdæmið annað nú nýlega.
Ljóst er af þessu máli að hrossabóndinn á Vestfjörðum lýgur eins og hann er langur til. Segist hafa fóðrað hrossin í allan vetur (og eigi enn til hey!) og ber svo við því að hrossin séu hætt að éta heyið vegna nýgræðingsins. Þá hafa þau lagt helvíti mikið af á stuttum tíma, því varla er komin mikill nýgræðingur í úthaga þarna fyrir vestan fyrst hann er varla kominn hér syðra.
Svo um hófana á einu hrossinu, sem hann segist hafa klippt fyrir tveimur mánuðum! Yfirleitt er nóg að klippa hófa/klaufir einu sinni á ári, ef það þarf þá á annað borð, og eru þeir þó ekki svona slæmir eftir árið eins og á umræddu hrossi eftir tvo mánuði!
Já, það er hægt að ljúga miklu að trúgjörnu fjölmiðlafólki sem virðist ekkert hafa vit á því sem það er að fjalla um, sbr. viðtalið við bóndann á ruv.is.
Hér eru svo sláandi myndir af ástandi hrossanna, einmitt á RÚV:
![]() |
Langaði helst að aflífa einn þeirra á staðnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 19:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.4.2023 | 09:54
Enn einn stríðsáróðurinn
Vestræn stjórnvöld og -fjölmiðlar reyna sem þeir geta til að magna upp stríðsstemmninguna gegn Rússum enda á nú að ganga á milli bols og höfuðs á þeim fyrir fullt og allt. Þetta auðvitað til að fá almenning með sér til að styðja stóraukna hernaðaruppbyggingu í Norðurhöfum, jafnt sem annars staðar í Evrópu.
Það heyrast þó aðrar raddir í fjölmiðlum þó lágværar séu. Á vef NRK, norska ríkisfjölmiðilsins, er t.d. rætt við mann sem hefur þjónustað rússnesk fiskiskip til fjölda ára í skipasmíðastöð í Norður-Noregi sem hann starfar við.
Hann segist aldrei hafa orðið var við neitt í þeim sem tengja mætti við njósnir. Sama má segja um aðra starfsmenn skipasmíðastöðvarinnar. Þeir benda á að þeir hafi ágæta yfirsýn yfir það hvað sé um borð í skipunum og aldrei orðið varir við nokkuð grunsamlegt.
Þessi frétt í Mogganum og fleiri slíkar í öðrum fjölmiðlum hér á landi er sem sé enn lygin, í þetta sinn um að rússnesk fiskiskip séu í raun njósnaskip, og er greinilega tilraun til að herða enn á viðskipta- og einangrunarbanninu á Rússa.
Einnig til að réttlæta að gera Norðurslóðir að mjög hernaðarlega mikilvægu svæði eins og Kaninn vill - nokkuð sem harðlínu- og stríðsæsingafólkið hér á landi tekur virkan þátt í:
https://www.nrk.no/tromsogfinnmark/vil-kaste-ut-fartoy-som-driver-ulovlig-etterretning-1.16381451
![]() |
Togari grunaður um njósnir átti viðkomu á Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 10:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.4.2023 | 17:05
Hola íslenskra fræða?
Sögusagnir um hvað þessi rándýra bygging eigi að heita eru að verða mjög háværar, þ.e. Hola íslenskra fræða, og er þá vísað til þess hversu lengi tómur húsgrunnurinn blasti við vegfarendum.
Þetta er auðvitað mjög þjált heiti og auðvelt að stytta það þannig að það fellur vel að málvitund þjóðarinnar og auðvelt að muna.
Reyndar kom einn norðlenskur spekingur með hugmyndina "Hólar íslenskra fræða" og vísar þar til Hóla í Hjaltadal og fornrar frægðar þess staðar - en mér finnst sögusagnirnar um Holunafnið betri.
![]() |
Beint: Hús íslenskunnar vígt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.4.2023 | 19:51
Geðlækni?
Geðlækni segir hér án þess að segja frá nafni viðkomandi. Hann er svo sviptur leyfi til að ávísa ópíóðalyfjum en virðist samt halda læknaleyfinu. Merkilegt er rétt er eftir haft því þessi læknir setti viðkomandi í mikla lífshættu!
Þetta er auðvitað gott dæmi um linkind landlæknisembættisins og annarra heilbrigðisyfirvalda gagnvart læknum sem virðast komast upp með mjög alvarleg mistök í starfi og meira að segja mjög glæpsamlegt athæfi.
Fyrst hélt ég að hér væri átt við mjög þekktan giktarlækni sem hefur slegið sig til riddara með því að upplýsa að hann hafi ávísað morfíni til fíkla af góðmennskunni einni saman. Eitthvað kunni landlæknir illa við þessa góðmennsku en svo virðist sem eftirmálar hafi engir orðið. Hvað ætli séu mörg þannig fleiri dæmi um dóp"sölu" íslenskra lækna, því varla hafa þeir ávísað dópinu ókeypis?:
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2022/11/05/eru_bara_mjog_mikid_veikir_einstaklingar/
https://www.visir.is/g/20222335336d
![]() |
Ávísaði óskiljanlegu magni af ópíóðalyfjum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 19:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.4.2023 | 20:07
Njósnir Kanans á banamönnum þeirra
Það síast hægt og hægt út í vestrænu pressunni hvað leku skjölin úr Pentagon hafa að geyma - og svo auðvitað hvernig ráðamenn vestra neita því staðfastlega að hafa njósnað um vinveittar þjóðir.
Ein þessara njósna varðar Egyptaland og eldflaugarnar 40.000 sem Kaninn gat ekki vitað um nema með njósnum. Einnig um Suður-Kóreu og vangaveltur þar í landi um að senda vopn til Úkraínu, og þá hvernig megi komast framhjá lögum landsins sem banna að senda vopn til landa sem eiga í stríði.
Fleiri dæmi má nefna svo sem að ísraelska leyniþjónustan styðji andófið gegn forsætisráðherra landsins, Netanyahu.
Þá koma í skjölunum fram óþægilegar upplýsingar, svo sem að Bandaríkin, Frakkland, Bretland og Lettland séu með hermenn í Úkraínu, nokkuð sem þeir neita að sjálfsögðu, ekki síst Frakkar sem þykjast vilja leita friðsamlegra lausna á stríðsátökunum.
Aðaltíðindin eru þó þau að í skjölunum er að finna mjög nákvæmar upplýsingar um fyrirhugaða mótaðgerðir Úkraníumanna nú í vor gegn Rússum, þ.e. um gagnsókn sem kemur þeim síðarnefndu mjög vel að fá innsýn í.
![]() |
Hafnar vitneskju um eldflaugarnar fjörutíu þúsund |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 20:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.4.2023 | 08:40
Nýtt njósnahneyksli Bandaríkjanna!
Þetta hefur auðvitað verið aðalfréttin í fjölmiðlum um allan heim undanfarna daga en Mogginn, trúr leppur Kanans, er fyrst núna að fjalla um þetta nýjasta henyksli þar vestra! Og auðvitað með augum Pentagonlygaranna sjálfra sem reyna að gera sem minnst úr lekanum.
Annars er athyglisvert að vestrænir fjölmiðlar hafa reynt að dylja almenning þess hvað kemur fram í þessum skjölum. Upplýsingar þar um eru harla litlar. Vestræna pressan virðist þannig hafa lært af Wikileaks- og Snowdenmálunum með því að reyna að þegja þetta hneyksli í hel, andstætt því sem þeir gerðu í hinum málunum þegar almenningur á Vesturlöndum fékk greinargóðar upplýsingar um þau. Þetta er auðvitað dæmigert fyrir þróun hinnar borgaralegu pressu í kjölfar Úkraínustríðsins.
Þó hefur ýmislegt lekið svo sem um síaukna þátttöku Bandaríkjamanna og NATÓ í stríðinu. Þetta er auðvitað ekki stríð milli Rússlands og vestur-Úkraínu heldur stríð Vesturveldanna við Rússa, stríð sem er búið að undirbúa í fjöldamörg ár.
Einnig er upplýst um ýktar tölum varðandi mannfall Rússa í stríðinu. Hið rétta mun vera 16-17.000 rússneskir hermenn meðan Úkraína hefur misst milli 61.000 og 71.000 hermenn. Ungum karlmönnum í landinu er þannig fórnað á altari útþennslustefnu ESB, Nató og USA. Ráðamenn í þessum löndum kynda undir stríðsáróðurinn og bera þannig ábyrgð á þessu manntjóni, einnig pólitíkusarnir hér á landi. Sömuleiðis fjölmiðlafólkið. Miklar manneskjur það.
Og þó svo að Pentagon sé að reyna að láta líta svo út að skjölin geti verið fölsuð eru flestir marktækir sérfræðingar vissir um að skjölin séu ekta, séu leki innanfrá úr Pentagon. Þau eru einnig ný, frá því í febrúar og mars.
Það nýjasta, sem er auðvitað ekkert nýtt, er að Kaninn njósnar einnig um bandamenn sína, þar á meðal um aðalleppinn þeirra, meistara Zelensky.
![]() |
Áhyggjur af þjóðaröryggi vegna skjalaleka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 08:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.3.2023 | 17:20
Ruslið og borgin
Þetta er alveg sláandi fyrir borgaryfirvöld og "grænu" stefnu hennar - sem og yfirvalda almennt. Fólki er sagt að flokka plast í sér tunnur, horfir svo uppá að það er yfirleitt ekki hirt fyrr en tunnurnar eru orðnar yfirfullar og sér það svo fjúka út um allt. Þá skiptir engu máli hvort ófærð sé eða ekki,
Nú er komið í ljós að það sama á við um móttökustöðvarnar. Þær hirða ekki betur um þetta flokkaða sorp en svo, að það fýkur um allt hjá þeim!
Þetta er hin græna stefna yfirvalda í hnotskurn, aðeins til í orði en ekki á borði.
Svo er auðvitað það skrítnasta við þessa plaststefnu ráðamanna þjóðarinnar. Almenningi, þ.e. neytendum, er gert að draga sem mest úr plastnotkun og flokka sem mest, en framleiðendum vörunnar ekki gert að takmarka á nokkurn hátt plastumbúðirnar utan um þær (sem eru oftast óþarfar)! Mér er spurn. Hvers vegna ekki? Enn eitt dæmið um þjónkun við kapitalið, græðgisliðið?
![]() |
Rusl á víðavangi í Víðinesi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.3.2023 | 12:02
Sá er ruglaður!
Alvöru vetrarveður áfram, segir veðurfræðingurinn, þó svo að spár geri ráð fyrir hlýindum um og uppúr miðri viku! Loks rigning í kortunum og allt að 10 stiga hiti!
Enn segir veðurspekingurinn að það verði "bara alvöru vetrarveður áfram á landinu, þó við séum að spá heldur hlýnandi veðri". Takið eftir þessu "þó við séum að spá" og einnig þessu "heldur hlýnandi"! Hitinn er að fara frá 6 stiga frosti í 8 stiga hita!! Sem betur fer eru fleiri veðurstöðvar til, sem spá um veðrið hér á landi, en sú íslenska...
Þið lesið það fyrst hér: Vorið kemur á miðvikudaginn!
![]() |
Alvöru vetrarveður áfram á landinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 12:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Torfi Kristján Stefánsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 50
- Frá upphafi: 463760
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 47
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar