14.5.2010 | 07:17
Landsbankinn og Jón Ásgeir
Er hér komin skýringin á því af hverju ekkert er gert í málefnum Landsbankans, eina bankans sem svo er ástatt fyrir. Þorir skilanefndin ekki að hreyfa sig vegna tengslanna við Jón Ásgeir?
Það að hafa fengið Jón Ásgeir til að sita fyrir sig í stjórn þessara fyrirtækja er slíkur skandall að fólk hlýtur að krefjast þess að skilanefndin segi af sér, eða verði rekin. Þetta er jú eini "ríkisbankinn" svo heimatökin ættu að vera hæg fyrir stjórnvöld ef skilanefndin þráast við að sitja.
Ef ekkert verður að gert þá fer ríkisstjórnin að fá á sig spillingarstimpilinn og er þá ekkert betri en fyrri stjórn.
Jón Ásgeir segir sig úr stjórn House of Fraser | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Torfi Kristján Stefánsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 37
- Sl. sólarhring: 124
- Sl. viku: 286
- Frá upphafi: 459207
Annað
- Innlit í dag: 35
- Innlit sl. viku: 262
- Gestir í dag: 35
- IP-tölur í dag: 35
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þessi stjórn er þegar komin með spillingarstimpil, það hefur sennilega engin stjórn stundað jafn mikla spillingu og náð fram að koma sínu fólki að á jafn stuttum tíma og þessi stjórn.
Landsbankinn er í eigu ríkisins, meðan þessi stjórn e við völd verður ekki gerð breyting á slitastjórn hans. Jón Ásgeir hefur verið tryggur stuðningsmaður annars stjórnarfloksins og er enn, því verður honum ekki refsað af hálfu stjórnarinnar.
Hvort slitastjórn bankans fari gegn vilja stjórnvalda og setji fram gögn um hverjir hinu seku eru í falli Landsbankans verður að koma í ljós, en líklegt er að það bíði þar til ný stjórn sest að völdum.
Gunnar Heiðarsson, 14.5.2010 kl. 10:20
Þetta með að J.Á.J. skyldi hafa setið í stjórn The House of Fraser í umboði Skilanefndar Landsbankans er einmitt það sem ég skil hreinlega ekki.
Skilanefndin hlýtur að vera tilbúin með einhverjar skýringar á umboðinu og það væri forvitilegt að vita hverjar þær kynnu að vera?
agla (IP-tala skráð) 14.5.2010 kl. 11:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.