Einbeittur brotavilji?

Ég hélt nú að Mogginn væri löngu kominn yfir kalda stríðið og væri farinn að átta sig á því hversu mikill farsi öll þessi leynd á einhverjum ansalegum skjölum og upplýsingum úr opinbera geiranum er.

En kannski er Mogginn nær nútímanum en ég er og að "kalda" stríðinu sé í raun ekki lokið heldur hafi aðeins færst í aðra mynd.

Annað hlægilegt mál sem tröllríður Mogganum og öðrum vestrænum fjölmiðlum er "njósnamálið" í Bandaríkjunum. Það hefur verið blásið upp úr öllu valdi eins og eitthvað stórmál en virðist þó einkum felast í því að koma "ólöglegum" rússneskum innflytjendum út úr landinu og fá í staðinn einhverja bandaríska "njósnara" sem sitja í fangelsi í Rússlandi.

En kannski er það má ekkert hlægilegt heldur grátlegt, sýnir hve veruleikafirrt bandarísk stjórnvöld eru og full af ofsóknarkennd - og hvernig hinn vestræni heimur spilar með. "Leyndarmál" eins og þau sem Bradley komst yfir myndu almennt séð teljast vera eitthvað sem opinber rannsóknarnefnd hefði átt að athuga og birta, en í staðinn hefur engin slík nefnd verið sett á fót í USA og slíkum upplýsingum auðvitað haldið leyndum sem ríkisleyndarmál.

Var einhver að biðja um opna og gegnsæja stjórnsýslu og/eða að taka á stríðsglæpum af sem mestri hörku?


mbl.is Notaði Lady Gaga sem skálkaskjól
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Garðar Valur Hallfreðsson

Stór ríki eru alltaf "paranoid", sama hvaða nöfnum þau heita, Kína, BNA, Rússland, o.s.frv.  Það eru t.d. stöðugar fréttr um síjun Kínaveldis á internetinu, eign rússneskra stjórnvalda á fjölmðilum sem m.a. felur glæpi þeirra gagnvart borgurum í Tjéteníu.  Það má örugglega koma með fleiri dæmi.

Ég segi bara, það verður engin stór með því að vera "góður".  Menn geta svosem sett hvaða skilning sem þeir vilja í þá staðhæfingu mína.

Garðar Valur Hallfreðsson, 9.7.2010 kl. 10:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Torfi Kristján Stefánsson

Höfundur

Torfi Kristján Stefánsson
Torfi Kristján Stefánsson
Höfundur er áhugamaður um hina ólíkustu hluti

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 46
  • Frá upphafi: 455616

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband