Ekki eru þau nú lík á myndinni

Ef það lágu ekki meiri sönnunargögn fyrir en myndin af Fischer uppi í rúmi hjá móður stúlkunnar, og stúlkunni með þeim - og eitt orð þar sem Fischer skrifar "Daddy" - þá gef ég nú lítið fyrir úrskurð Hæstaréttar.

Myndin af þeim sýnir jú engan svip með þeim. Stelpan virðst hreinræktaður Filippseyingur með ekki snefil af "vestrænu" blóði í sér.

Þá er og athyglisvert hvernig blöð eins og HeraldTribune eru tilbúin til að álykta í málinu svona fyrirfram. Það er ekki eina blaðið sem tekur afstöðu í þessu erfðamáli - og flest þeirra taka afstöðu gegn japanskri eiginkonu Fischer, þrátt fyrir að hún hafi pappíra upp á hjúskap þeirra og þrátt fyrir að hafa staðið við bak hans allt þar til yfir lauk.

Hvað veldur? Fréttaþorsti?


mbl.is Lögðu fram mynd af Fischer með dótturina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hvumpinn

money, money, money...

Hvumpinn, 26.7.2010 kl. 12:07

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ert þú ekki sjálfur búinn að taka afstöðu fyrir fram? Þú varst á móti því að lifsýni væri tekið en það er pottþétt aðferð til að leiða hið sanna í ljós. Þú ert bara búinn að ákveða, án allra sannanna,  að þetta geti ekki verið dóttir Fischers. Einn ættingi minn á filipíska konu og mörg börn með henni. Þau virðast öll vera ''hreinræktaðir'' filipseyingar í útliti. En útlitið segir ekki alla sögu.

Sigurður Þór Guðjónsson, 26.7.2010 kl. 12:18

3 Smámynd: Torfi Kristján Stefánsson

Já, við sjáum hvað setur en ég er nokkuð viss um að Fischer eigi ekkert í stelpunni. Eg veit ekki betur en að hann kynntist þessari konu eftir að stelpan fæddist.

Hér eru því peningar á ferðinni enn einu sinni að mínu mati, þó ég viðurkenni að það sé auðvitað skritið að fara þá leið sem ætti að leiða svikin i ljós.

Torfi Kristján Stefánsson, 26.7.2010 kl. 13:17

4 Smámynd: Anna Dóra Gunnarsdóttir

Migið assgoti eru margir vel að sér í ástamálum Fischers sáluga. Var eitthvert ykkar viðstatt getnað þessa barns sem kannski og kannski ekki er dóttir hans?

Anna Dóra Gunnarsdóttir, 26.7.2010 kl. 16:25

5 Smámynd: Torfi Kristján Stefánsson

Það er kúnst að vera fluga á vegg, kvnst sem ekki er öllum lagið.

Torfi Kristján Stefánsson, 26.7.2010 kl. 17:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Torfi Kristján Stefánsson

Höfundur

Torfi Kristján Stefánsson
Torfi Kristján Stefánsson
Höfundur er áhugamaður um hina ólíkustu hluti

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 455398

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband