8.4.2011 | 15:23
Maðurinn er greinilega fífl!
Það væri betur ef núverandi ríkisstjórn væri byltingarstjórn og losaði okkur við menn eins og föður Sigmunds, sem fékk endalaus bitlinga frá ríkisstjórn Framsóknar á sínum tíma.
Móðir mín, aðdándi Eysteins og þeirra, snýr sér eflaust við í gröfinni þegar (ef?) hún fréttir hvert gamli flokkurinn sinn stefnir - kominn hægra megin við sjálft íhaldið í sinni öfgafullu nýfrjálshyggja.
Flokkurinn undir forystu Sigmundar Davíðs virðist stefna staðfastlega að einu marki: nýju hruni (og að hirða molana sem falla af hrunborðinu fyrir nýja hrunið).
Höfum misst af tækifærum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Torfi Kristján Stefánsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 98
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 84
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hvernig færðu það út að Framsóknarflokkurinn sé komin hægra megin við íhaldið..?? Ég spyr svona bara af forvitni..
Eiður Ragnarsson, 8.4.2011 kl. 17:24
Tja, hvar á ég að byrja?
Á kröfunni um skattalækkanir sem er ekta hægri stefna, kvörtuninni yfir því að skattkerfið sé flækt, sem þýðir einfaldlega kröfu um eitt skattþrep og þar með það sama fyrir hátekjufólk og lágtekjumenn, og afskriftir á öllum skuldum óreiðumannanna.
Álver í hvern fjörð og virkja hverja sprænu, óhefta "fjárfestinu" útlendinga í innlendum orkuauðlindum osfrv. osfrv..
Viltu að ég haldi áfram?
Torfi Kristján Stefánsson, 8.4.2011 kl. 19:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.