3.3.2014 | 20:01
Hvað með fasistana?
Kastljós og fyrrum forsetaframbjóðandi, Þóra Arnórsdóttir, var með hámark hlutdrægninnar í umfjöllun um Úkraínu nú rétt í þessu.
Talað var við bandarískan áróðursmeistara um það hvað fyrrum stjórnvöld í Úkraínu hafi verið spillt en ekki orð um hverjir það væru sem steyptu þessari "spilltu" stjórn af stóli.
Fréttir frá Svíþjóð herma hins vegar frá ýmsu miður fallegu frá uppreisnarmönnunum. Í dag var sagt frá sænskum hermanni sem var rekinn úr hernum fyrir ræðu sem hann hélt á Sjálfstæðistorginu nú í febrúar. Þar lýsti hann því yfir að Svíþjóð væri ekki lengur sitt land vegna dekurs á innflytjendum.
Þá sagði hann að minnihlutahópar nytu forréttinda og að 13 ára krökkum væri kennt hvernig mætti stunda kynlíf með innflytjendum og þroskahömluðum. Allt tal hans einkenndist af útlendingahatri og rasisma.
Þetta tal féll auðvitað í kramið meðal "uppreisnarmanna" í Kænugarði - og kannski flestra vina "uppreisnarinnar" hér á Vesturlöndum?:
http://www.dn.se/nyheter/sverige/svensk-soldat-sparkas-efter-rasistiskt-kiev-tal/
Reyna að komast til botns í málinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Torfi Kristján Stefánsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 73
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 61
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.