10.1.2016 | 14:44
Allt annað en í gær en ...
Fyrri hálfleikur íslenska handboltalandsliðsins núna í seinni leiknum gegn Þjóðverjum er allt annar en var í gær. Þá hélt Aron Pálma liðinu á floti með góðum sóknarleik en var að sama skapi til bölvunar í vörninni. Þá léku Arnór Atla og Rúnar ekki neitt en mikið núna og sóknin því ekki eins einhæf og í gær. Vörnin er og miklu betri með Arnór inn á og þegar Aron hvílir.
Reyndar er tilraunastarfsemi þjálfarans áhyggjuefni, þ.e. að láta Guðmund Hólmar spila sóknina í hluta síðari hálfleiks og skrítið að Tandri skuli ekki fá tækifærið fyrst það þarf að hvíla Arnór. Kannski er verið að gefa Guðmundi síðasta sjens sem sóknarmann og skilja hann eftir sem 18. mann ef hann tekur hann ekki.
Þriggja marka sigur í síðasta leik fyrir EM | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Torfi Kristján Stefánsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.11.): 76
- Sl. sólarhring: 77
- Sl. viku: 102
- Frá upphafi: 458122
Annað
- Innlit í dag: 64
- Innlit sl. viku: 89
- Gestir í dag: 60
- IP-tölur í dag: 60
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Flottur sigur og vörnin miklu betri en í gær.
Gott að hvíla Róbert og Snorra alfarið og losna þannig við hinar hvimleiðu skiptingar tveggja manna í vörn og sókn. Vonandi fá þeir að hvíla sem mest á EM, enda eru þeir sem leysa þá af að spila vel (Kári og Vignir, Arnór og Ólafur).
Torfi Kristján Stefánsson, 10.1.2016 kl. 15:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.