Lögregluofbeldi í Danmörku

Það er ekki nóg með að danska lögreglan réðist alverjuð (með hjálma og skildi) inn í kirkju í Køben og dró þaðan flóttamenn sem presturinn og sóknarnefndin hafði veitt hæli, heldur réðst hún einnig á mótmælendur sem ætluðu að koma flóttafólkinu til hjálpar.

Á myndskeiði sem sést hér: http://politiken.tv/nyheder/indland/article767796.ece má sjá grimmdarlegt ofbeldi gegn friðsömum mótmælendum. Þar er stúlka ein margbarin í höfuð, bak og lendar þar sem hún liggur á götunni. Auk þess er piparúða sprautað í andlit fólksins og það í mikilli nálægt, auk þess sem einn lögreglumaðurinn slær stúlku í andlitið.

Þessa lögregluaðgerð kallaði danski innanríkisráðherrann, og formaður hægra flokksins, mjög vel heppnaða aðgerð. Sjá annars fréttir politiken.dk af aðgerðum lögreglunnar gegn írösku innflytjendunum hér: http://politiken.dk/system/topicRoot/De_afviste_irakere/

Tekið skal fram að um kvöldið mótmæltu tugir þúsunda manns þessari framkomu lögreglunnar og 275 prestar og guðfræðingar hafa mótmælt innrásinni í kirkjuna (http://politiken.dk/incoming/article768514.ece)

Aðgerðir dönsku lögreglunnar minna mjög á ofbeldi íslensku kollega þeirra gegn Saving Iceland hópnum þar sem ein ung stúlka var harkalega misþyrmt af einum sadistanum í löggunni.

Greinilegt er að lögregluofbeldi, þ.e. fasískar aðgerðir gegn friðsömum mótmælendum, hefur aukist mjög undanfarið  ár.

Það er kominn tími til að almenningur rís upp gegn þessum brotum á rétti almennra borgara til að tjá andúð sína á pólitískum aðgerðum og standa þannig vörð um lýðræðið og tjáningarfrelsið í landinu - auk þess að styðja mannréttindi innflytjenda.

 


mbl.is Mótmælt við danska sendiráðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Torfi Kristján Stefánsson

Hér er annað myndskeið frá ofbeldi lögreglunnar og viðtal við stelpuna sem lamin var svo illilega af löggunni:

http://politiken.tv/nyheder/indland/article768367.ece

Torfi Kristján Stefánsson, 17.8.2009 kl. 16:56

2 Smámynd: Torfi Kristján Stefánsson

Og hér er myndskeið frá mótmælagöngunni eftir lögregluofbeldið og fundurinn eftir á þar sem milli 25000-30000 manns tók þátt:

http://politiken.tv/nyheder/indland/article767921.ece

Torfi Kristján Stefánsson, 17.8.2009 kl. 17:00

3 identicon

Eftir að hafa horft á þetta video frá danmörku þá skil ég ekki hvað við íslendingar virðumst væla mikið yfir lögreglu ofbeldi.

Ingi (IP-tala skráð) 17.8.2009 kl. 17:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Torfi Kristján Stefánsson

Höfundur

Torfi Kristján Stefánsson
Torfi Kristján Stefánsson
Höfundur er áhugamaður um hina ólíkustu hluti

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 46
  • Frá upphafi: 455605

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband