Brögð í tafli?

Mér skilst nú að báðir aðilar saki hinn um óeðlileg afskifti af kosningunum, einkum að meina andstæðingum sínum að komast á kjörstað, eða "hjálpa" mörgum að kjósa heima. Eftirlitsaðilar segja þó að ekki kveði rammt að þessu.

Þá er nær öruggt talið að fólk streymi ekki aftur út á göturnar eins og 2004 þegar Janúkóvitsj vann einnig en neyddist til að halda aðrar kosningar vegna ásakana um kosningarsvik - og tapaði þá.

Nú er alls ekki sú stemning fyrir hendi sem þá var og að auki er nú megn óánægja með leiðtoga appelsíugulu byltingarinnar, sem hafa notað stjórnartíð sína til að hygla sjálfum sér og vinum sínum. Er svo komið að eitt mest lofandi land Evrópu er komið í hóp þeirra fátækustu, rétt eins og við Íslendingar, þ.e. vegna spillingar nýfrjálshyggjuaflanna.

Leiðinlegt fyrir vestrænu hægripressuna, en nú eru aðrir tímar en fyrir sex árum þegar glópagullið glóði sem mest.


mbl.is Janúkóvítsj með forustu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Torfi Kristján Stefánsson

Höfundur

Torfi Kristján Stefánsson
Torfi Kristján Stefánsson
Höfundur er áhugamaður um hina ólíkustu hluti

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 48
  • Sl. viku: 130
  • Frá upphafi: 455503

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 117
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband