"önnur lönd á svæðinu"?

Það eru ekki mörg lönd á "svæðinu" sem hafa viðurkenna uppreisnarmenn sem löglega stjórn Libyu. Afríska þjóðarráðið, með sín 54 meðlimslönd, hefur t.d. ekki gert það og munu ekki gera fyrr en bardögum er hætt í landinu. Þau hvetja þvert á móti stríðandi fylkingar til að semja vopnahlé og mynda bráðabirgðastjórn til að koma stjórnkerfinu af stað aftur og hindra blóðsúthellingar.

Á þetta er alls ekkert hlustað - og allra síst af yfirstjón NATÓ á svæðinu sem greinilega hefur lítinn áhuga að vernda almenna borgara hliðholla Gaddafi. Þeir virðast réttdræpir.

Sögum af slæmri meðferð - jafnvel fjöldaaftökum - fer sífellt fjölgandi. Særðir stuðningmenn stjórnarinnar liggja víða á götum Triboli og fá enga aðstoð. Maður einn tók sig til, setti nokkra þeirra upp á pallbíl og ók með þá til sjúkrahúss í borginni. Á leiðinni var hann margsinnis stöðvaður af uppreisnarmönnum sem lömbdu og hræktu á þá særðu og reyndu að koma í veg fyrir að þeir kæmust leiðar sinnar. Auk þess verða óbreyttir borgarar vitna að því að fólk á meðal þeirra er handtekið og ekið í burtu. Þetta er gert í yfirskini þess að verið sé að leita að Gaddafi og fjölskyldu hans.

Nú þykir ekki lengur tilhlýða að vernda óbreytta borgara eða fara að reglum um meðferð særða og fanga. Enda var "verndunin" bara yfirskin. Markmiðinu er náð. Að komast yfir olíuauðlindir landsins.


mbl.is Gæti hafa flúið til Alsír
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: el-Toro

þetta er alveg alveg ótrúlegt.  ekki nóg með að afríksambandið vilji ekki viðurkenna uppreysnarmennina heldur urðu Líbanir alveg brjálaðir þegar þeir sáu hvernig NATO fór með tilskipun UN fyrir Líbíu.

svo er alveg merkilegt með þessa svokölluðu mercenaries menn Gaddafis voru sagðir slátra fólki í tugatali.  nú þegar bardagum er að linna í Tripoli, þá eru fjölmiðlar að afsaka dráp á innflytjendum og þeim sem eru afríku-svartir á hörund.  segja uppreysnarmenn hafa haldið að þeir væru mercenaries.

skelfilegt þegar vitað er fyrir löngu síðan að uppreysnarmenn vilja ekki sjá svo dökkt fólk í sínum flokkum.  þetta er sáralítið fjallað um í miðlum vestanhafs...af hverju ekki...því það hentar ekki þeirra útgáfu af stríðinu.

svo eru vopn úr stríðinu farin að seljast á svörtum markaði í löndunum í kring.  verð á AK-47 rifflum er hríðfallið sökum offramboðs.  BBC útvarpaði þessu meira að segja í gær.

el-Toro, 27.8.2011 kl. 14:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Torfi Kristján Stefánsson

Höfundur

Torfi Kristján Stefánsson
Torfi Kristján Stefánsson
Höfundur er áhugamaður um hina ólíkustu hluti

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 133
  • Frá upphafi: 455510

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 120
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband