4.3.2019 | 08:57
Spurning hvort að fleiri ættu ekki að taka pokann sinn?
Ljóst er af fréttum um starfsemi Félagsbústaða, stjórnandans og yfirstjórnenda borgarinnar, að það eru fleiri en framkvæmdastjórinn sem hafa óhreint mjöl í pokanum sínum. Árið 2016 kom fram að Auðunn þessi hafði fengið um 3,8 milljónir í árslaun, eða um 3 milljónir á mánuði án þess að Reykjavíkurborg hafi gert nokkuð í málinu!
Þá voru fréttir um 400 milljónir króna framúrkeyrslu vegna viðgerðar á blokk í eigu Félagsbústaða - og svo þetta með óánægju starfsfólks sem Heiða Björg Hilmarsdóttir borgarfulltrúi Samfylkingarinnar neitaði alfarið að hefði nokkuð með uppsögnina að gera. Það var greinilega hrein og klár lygi:
https://www.frettabladid.is/frettir/uppsoegn-auuns-ekkert-tengd-kvoertunum
Auk þess má nefna að Regína Ásvaldsdóttir, sviðstjóri velferðarsviðs, afhenti nýlega Auðunni veglegan blómvönd fyrir vel unnin störf þó svo að flestar hans gloríur lægju þá þegar fyrir!
Spurning hvort að þessar tvær ættu ekki einnig að fara að huga að nýjum starfsvettvangi?
Hættu vegna stjórnandans | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 09:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Torfi Kristján Stefánsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.10.): 5
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 362
- Frá upphafi: 458016
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 322
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar