Grímulaust ofbeldi

Þó svo að SA reyni að koma sökinni yfir á Eflingu með sínum lúalegum hætti þá er ljóst að Efling hefur gert allt til að koma til móts við "atvinnurekendur". Hún frestaði verkfalli um þrjá daga og allt stefndi í að aðilar gætu talað saman. Menn voru ekki með neinar yfirlýsingar og vonuðu hið besta. 

En þá gerðist hið hræðilega. Listaspíran Halldór Benjamín stóð upp úr kvefinu, sem næstum hafði bjargað viðræðunum, og þar með snarbreyttist tónn SA í garð Eflingar. Og það merkilega gerðist að fjölmiðlarnir spiluðu með og fóru að hvetja til verkbanns ("ætlið þið að setja á verkbann?" "Já það kemur til greina"!).

Verkbann á alla félaga Eflingar, óháð því hvort þeir séu í verkfalli eða ekki, þýðir ofur einfaldlega að verið sé að þvinga ríkisvaldið til að grípa inní deiluna og setja lög sem banna verkföllin.

Og svo eru atvinnurekendur að væla yfir því takmarkaða "tjóni" (les takmarkar gróða þeirra) sem verkfallið veldur. Hvað þá með verkbann þeirra sjálfra?


mbl.is Leggja til verkbann á Eflingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Klikkaðir Norðmenn!

Norðmenn gera það ekki endasleppt í stuðningi sínum við harðlínumennina í Úkraínu. Ástæðan er eflaust landlægt hatur Norðmanna á Rússum og dýrkun Norsara á hernaðarbröltinu. Þetta er auðvitað gott dæmi um þakkir Norðmanna til Rússa fyrir að hafa hrakið Þjóðverja frá Noregi í lok seinni heimsstyrjaldarinnar og komið nasistastjórn Quistlings frá völdum í landinu. 
Merkilegt þetta með hernaðarhyggju- og rússahatur Norðmanna. Í seinni heimsstyrjöldinni börðust um 60.000 Norðmenn með nasistum á austurvígstöðvunum. Þá hét það stríð gegn kommúnistunum en nú er það persónugert gegn einum manni, Pútín. Já yfirskinið er ólíkt en niðurstaðan sú hin sama.

Sama má segja um Dani. Þeir gefa Úkraínumönnum þjóða mest til að berja á Rússum enda sendu þeir svipaðan fjölda "sjálfboðaliða" til að berjast gegn Sovétmönnum í heimsstyrjöldinni síðari.

Og báðir bera við brot á alþjóðalögum en nefna ekki einu orði þátttöku þeirra sjálfra í stríði Nató og USA í Austurlöndum nær, sem einmitt var brot á alþjóðalögum. Loftárásir danska og norska flughersins á skotmörk í Lýbíu eru besta dæmi þess en Nató hafði aðeins fengið leyfi alþjóðasamfélagsins til að "friða" lofthelgi Lýbíu. Það var auðvitað þverbrotið með engum afleiðingum fyrir þá eða NATÓ.

Svo er það spurning um álit almennings í Noregi (og annars staðar á Vesturlöndum) á þessum gjöfum til Úkraínu. Það er greinilega til nóg fjármagn til að halda stríðinu í gangi sem allra lengst en ekkert til að aðstoða almenning við að kljúfa hið himinháa orkuverð í Evrópu, orkuverð sem er fyrst og fremst ESB að kenna því ekki má "niðurgreiða" orku til almennings (og allra síst í þeim löndum sem framleiða orkuna)!


mbl.is Þúsund milljarðar til Úkraínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þessi er rugluð!

Það kemur svo sem ekki á óvart að íhaldið grípi til varna þegar kemur að spillingunni vegna fiskeldisins. Kristján Júlíusson, fyrrum sjávarútvegsráðherra og Samherjavinur, er sá sem er sökudólgurinn í þessu máli, þ.e. í algjöru eftirlitsleysi með þessari starfsemi sem er einn helsti mengunarvaldurinn í íslenskri lögsögu. Og auðvitað með dyggum stuðningi Einars Guðfinnssonar, fyrrum ráðherra íhaldsins og málsvara norsku auðvalds-fiskeldishringanna.
Og þá er notast við leppinn á Bæjarins besta, Kristinn H. Gunnarsson (Kidda sleggju), sem er jú þekktur fyrir að vera áróðursmaskína auðmagnsrónanna fyrir vestan. 
Og hvernig er ríkisendurskoðandi svo vanhæfur til að fjalla um málefni fiskeldisins? Jú vegna þess að hann á árspænu vestur í Dölum þar sem veiðast um 50 laxar á ári - og fyrir að vera ráðuneytisstjóri í Landbúnaðarráðuneytinu árið 2014 og skrifað undir reglugerð um að koma böndum á fiskeldið, reglugerð sem ráðherrann hafði ákveðið!

Já, lágt er lagst til að vernda norsku auðrónana, sem fá að starfa án nokkurs eftirlits hér á landi og skila að auki litlu sem engu til íslenska þjóðarbúsins heldur fara með nær allan gróðann úr landi. Já, verja skal auðrónana með öllum ráðum - og þá er gripið til smjörklípunnar eins og svo oft áður:

https://www.visir.is/g/20232376433d/segir-grat-legt-ad-sja-fjol-midla-kok-gleypa-rydgadan-ongul-kidda-sleggju

 


mbl.is Skýrslan skoðast í samhengi við hagsmunatengsl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

frettin.is

Merkilegt þetta með sakfellingu þessarar Margrétar hjá Fréttinni. Ekki óeðlilegt að tengja þetta aðför að þessum miðli því hann birtir óþægilegar fréttir af hræsnum og lygum vestrænna fjölmiðla, sem "dilla rófunni" í hvert sinn sem Kaninn og Nató skipa svo fyrir. Bandaríkin sem hryðjuverkaríki.

Stríðið í Úkraínu hefur fengið alveg sérstakan sess hjá vestrænu pressunni og einnig hér á landi. Áróðurinn og hlutdrægin er yfirgengileg. Norðmenn ganga þar einna lengst með stuðningi sínum við Kanann eins og kemur fram hjá landa þeirra, "harðlínugarpinum" Stoltenberg sem "er haskinn sem passar á amerískar hendur."

Á frettin.is er því haldið fram að Norðmenn, að skipun herraþjóðarinnar vestanhafs, hafi sprengt upp Nordstream gasleiðslu Rússa, enda hafa þeir stórgrætt á því að gassala Rússa til Evrópu hefur dregist mjög saman:

https://frettin.is/2023/02/09/amerika-og-noregur-sprengdu-nord-stream/

https://frettin.is/2023/02/08/verdlaunabladamadur-segir-bandarikin-hafa-sprengt-nordstream-med-adstod-noregs/

Hversu rétt þetta er má sjá af tekjum norska olíusjóðsins. Norsararnir hafa grætt mikið á þessum skemmdarverkum á rússnesku gasleiðslunni og á Úkraínustríðinu, eins og flestir auðhringir á Vesturlöndum. Ótrúlegt er að sjá tekjur þessara fyrirtækja nú undanfarið. Hér er eitt dæmið:

https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2022/01/27/norski_oliusjodurinn_tutnar_ut/

 


mbl.is Margrét sakfelld fyrir að hóta Semu Erlu lífláti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Snarvitlaust veður eða snarvitlaus spá?

Spáin gekk ágætlega eftir segir veðurfræðingurinn á vakt. En var það svo?

Meðalvindur á höfuðborgarsvæðinu fór mest í 18 m/s (og 25 m/s í hviðum) en um tíma var jafnvel spáð ofsaveðri, eða um og yfir 30 m/s í meðalvindi!
Spáin rættist þannig nema að litlu leyti. Spáð var snarvitlausu veðri en svo kom í ljós að það var spáin sem var snarvitlaus!

Það er reyndar spurning hvort að stormurinn hafi ekki verið mestur og verstur inni á sjálfri Veðurstofunni í Öskjuhlíð því vefur hennar, vedur.is, datt út um tíma sem og textavarpið.
Það hefur þannig greinilega gengið meira á þar en annars staðar!


mbl.is „Ættu allir að komast sem vilja“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Harðlínumaður í embætti!

Budanov þessi er frægur af endemum fyrir að vera yfirlýsingaglaður og svífast einskis í hernaðaráróðrinum. Nýlega hélt hann t.d. fram að Pútín var að deyja úr krabbameini en það hefur verið borið til baka af mun áreiðanlegri heimildum en þessa Budanovs.

Annars fer fréttaflutninginn af stríðinu í Austur-Úkraínu sífellt versnandi og hlutdrægni vestrænna fréttamiðla eykst stöðugt. Nú er t.d. ekki lengur hægt að leita upplýsinga á Wikipedia um einstaka menn í úkraínska stjórnkerfinu og tengsl þeirra við hægri öfgamenn eins og Azov-nasistanna, en það var þó hægt í upphafi átakanna. Og reyni maður að gúggla nöfn eins og þessa manns þá eru margar blaðsíður um hversu stríðsóður maðurinn er en ekkert um bakgrunn hans.

Reyndar er full ástæða til að ætla að hreinsanir Zelenskís á æðstu embættismönnum landsins undanfarið séu ekki vegna meintar spillingar þeirra, það sé aðeins tilbúningur fyrir vestrænu pressuna og áframhaldandi fjárstuðning við landið, heldur fyrst og fremst til að koma öfgafyllri og hamslausari mönnum að eins og þessum Budanov. 

Og það er auðvitað almenningur og óbreyttir hermenn sem líða fyrir þennan stríðsleik ráðamanna í Úkraínu - og stuðning ESB og NATÓ við þessi stríðsátök. Pólitíkusunum er nefnilega skítsama um líðan almennings og elska að sýna vald sitt - og að vera í stríðsleik. 


mbl.is Úkraínumenn skipta um varnarmálaráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var hann ekki meiddur á HM?

Aron Pálmarson er líklega sá landsliðsmaður í handbolta sem er mesta prímadonnan sem nokkurn tímann hefur spilað fyrir handboltalandsliðið.
Lýsingarorðin um þennan "snilling" hafa verið yfirgengilegar en að vísu dregið úr þeim nú seinni ár.
Aron datt svo snemma út á HM núna og spilaði ekkert síðustu leikina þó svo að lítið væri gefið upp um ástæðuna. Líklega hefur hann ekki nennt þessu frekar en á síðustu mótum.

Einhverjir landsliðsþjálfarar hefðu eflaust gert athugasemdir við þetta og sett manninum stólinn fyrir dyrnar: annnað hvort spilarðu fyrir landsliðið ef þú ert ekki meiddur eða þú verður aldrei aftur valinn.

En ekki skræfan hann Gummi! Hann þorir hvorki að hósta né ræskja sig við Aron - og því kemst Aron upp með þetta skróp sitt ár eftir ár.

 


mbl.is Aron atkvæðamikill í toppslagnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tíu?

Hér eru aðeins taldir upp sex íslenskir leikmenn í dönsku úrvalsdeildinni. Hverjir eru hinir fjórir? 
Ég get svo sem reynt að nefna þá: Aron Sigurðarson í Horsens og Aron Elí Þrándarson í OB (kannski á leið burtu?), sem og auðvitað Mikael Anderson í AGF og Elías Ólafs markvörður í Midtjylland.
Þetta eru allt landsliðsmenn svo það er skrítið að íþróttablaðamaður Moggans skuli ekki nenna að skrifa nöfn þeirra ... 


mbl.is Tíu Íslendingar í deildinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Persónur Íslendingasagna?

Ég man nú ekki til þess að nokkur persóna í Íslendingasögunum hafi heitið Burkni!
Hins vegar bera næstu götur í námunda við nýja Landspítalann plöntunöfn: Smáragata, Fjólugata, Sóleyjargata, svo það þarf ekki mikla vitsmunabrekku til að sjá að Burknagata er þannig kennd við jurt eins og þessar nefndu götur.
En fjölmiðlaliðið stígur jú ekki í vitið eins og nú er deginum ljósara - og hefur verið ljóst harla lengi!


mbl.is Nýr spítali kenndur við Burknagötu?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Torfi Kristján Stefánsson

Höfundur

Torfi Kristján Stefánsson
Torfi Kristján Stefánsson
Höfundur er áhugamaður um hina ólíkustu hluti

Færsluflokkar

Feb. 2023
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 131
  • Frá upphafi: 455516

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 119
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband